Helsinqi

Úr Metapedia
(Endurbeint frá Helsingi)
Stökkva á: flakk, leita

Helsinki á finnsku (Helsingfors á sænsku) er höfuðborg Finnlands og jafnframt stærsta borg landsins með yfir 621 þúsund íbúa (2014). Á öllu Helsinkisvæðinu búa samanlagt 1,3 milljónir íbúa. Helsinki er helsta miðstöð stjórnmála, menningar og vísinda í Finnlandi.

Helsinki eða Helsingfors, eins og bærinn nefndist upphaflega, var stofnaður 1550 af Gústaf Vasa, Svíakonungi, sem keppinautur hansakaupstaðarins Tallinn í núverandi Eistlandi. Það var þó ekki fyrr en eftir að Finnland féll í hendur Rússum 1808 og varð að finnska stórfurstadæminu 1809 sem vegur Helsinki fór að dafna. Sem þátt í viðleitni sinni að minnka áhrif sænskrar menningar og tengsla við Svíþjóð ákvað Alexander I, Rússlandskeisari og stórfursti Finnlands, að flytja höfuðborgina frá Turku (Åbo) til Helsinki árið 1812.

Við lok 19.aldar hafði meirihluti íbúa Helsinki sænsku að móðurmáli en vegna mikils innflutnings finnskumælandi fólks til borgarinnar hafa hlutföllin snúist við og nú hefur mikill meirihluti borgarbúa finnsku að móðurmáli.

Mynd:Suurkirkko Helsinki maaliskuu 2002 IMG 0629.JPG
Lútherska dómkirkjan í Helsinki

Fólksfjölgun í Helsinqi

Ár Íbúafjöldi
1810 4 070
1830 11 100
1850 20 700
1880 43 300
1900 93 600
1925 209 800
1970 524 000
1980 484 000
1990 491 000
1992 497 526
2000 555 474
2010 588 549
2011 592 000
2012 604 380
2014 620 982

Helstu staðreyndir um Helsinki:

  • Stofnuð: 1550
  • Höfuðborg: síðan 1812
  • Stærð í ferkílómetrum: 686 (þar af sjór 500)
  • Strandlína: 98 km
  • Fjöldi eyja: 315
  • Meðalhitastig (allt árið 2004): 6,2 °C
  • Hlýjasti mánuður: ágúst með meðalhita 17.3 °C
  • Kaldasti mánuður: janúar með meðalhita -5,7 °C
  • Heildaríbúafjöldi (2004/2005): 559.046
  • Karlar: 46,6%
  • Konur: 53,4%
  • Finnskumælandi: 86,7%
  • Sænskumælandi: 6,2%
  • Íbúaþéttleiki: 2993 íbúar/ferkílómetra
  • Heildarfjöldi íbúa á öllu Helsinki svæðinu 1 300 000