JIDDÍSGA

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Jiddíska er vesturgermanskt mál talað sem fyrsta mál af um 200 000 manns í Mið- og Austur-Evrópu, Bandaríkjunum og Ísrael og af um það bil 2 milljónum sem annað mál.

Þetta mál má rekja allt til 9. og 10. aldar þegar Gyðingar frá Frakklandi og Norður-Ítalíu tóku að setjast að í talsverðu mæli í vestur Þýskalandi, einkum Rínarlöndum. Töluðu þeir rómanskar mállýskur þeirra landsvæða sem þeir komu frá en þær lituðust smám saman svo mjög af þýsku að nýtt mál varð til sem telst germanskt að málfræðilegri byggingu auk þess sem orðaforðinn er að verulegu leiti úr þýsku kominn.

Málfræði

Málfræði jiddísku svipar um flest til þýsku. Nafnorð hafa þrjú kyn og beygjast í tölum og föllum. Flest nafnorð hafa þó aðeins tvö fallform, nefnifall og eignarfall. Algengast er að nafnorð myndi fleirtölu með -s eða -es, en aðrar fleirtöluendingar eru -er, -im, ekh og kh. Sum nafnnorð hafa enga fleirtöluendingu en skipta um sérhljóð í stofni. Lýsingarorð beygjast eftir kyni, tölu of falli.

Ólíkt þýsku er þátið sagnorða ekki sérstök beygingarmynd heldur sett saman með hjálparsögn venjulega habn (hafa) en stundum zayn (vera).