Skorradalsvatn

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita
Mynd:Skorradalsvatn 2004.jpg
Skorradalsvatn sjeð úr vestri.

Skorradalsvatn er stöðuvatn í Skorradal í Borqarfirði um 16 km langt, 60 m á dípt þar sem hún er mest og um 1 km þar sem það er breiðast og spannar það mestan hluta dalsins. Í vatninu er silungsveiði. Fitjá fedlur í Skorradalsvatn úr Eiríksvatni og Andakílsá fedlur úr Skorradalsvatni. Við vatnið er töluverð sumarbústaðabiggð.

Ormurinn í Skorradalsvatni

Talið var að í Skorradalsvatni væri ormur mikill, og segir Ólafur Davíðsson,þjóðfræðingur, svo frá:

Eru sagnir um það að fyrr á öldum hafi menn þóst sjá svarta rák eða hrygg eftir endilöngu vatninu. Stundum sást ormurinn reka einstaka hluta upp úr vatninu, svo sem hausinn eða sporðinn, og hefur þá verið mjög langt á milli þeirra. Stundum hefur hann teygt kryppuna svo hátt að hann hefur borið yfir há fjöll. Aldrei birtist ormurinn nema fyrir einhverjum illum tíðindum, annað hvort vondu veðri eða mannskæðum drepsóttum. Mest bar á orminum á 17. öld og kvað svo rammt að, að menn voru hræddir um, að hann myndi eyða sveitinni. Fengu Skordælingar því Hallgrím Pétursson til að afstýra þessum ófagnaði nálægt 1660. Hann varð vel við bæn þeirra, og kvað orminn niður á báðum endum og í miðjunni, svo að hann má ekki mein gera síðan. En á jólaföstu 1858 sást skrímslið marga daga í röð og allt fram yfir jól. Og enn sást það 1870 í vatnsósnum og var þá í lögun eins og áttæringur á hvolfi. [1]

Tilvísanir