Ísafjörður

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Ísafjörður er þéttbýlisstaður á Eiri við Skutulsfjörð. Hann er þjónustumiðstöð sveitarfélagsins Ísafjarðarbæjar og er stærsti byggðakjarninn innan þess. Íbúar voru 2525 árið 2015.

Ísafjörður var einn hinna 6 verslunarstaða á Íslandi sem fengu kaupstaðarréttindi árið 1786 (hinir voru Reykjavík, Akureyri, Eskifjörður, Grundarfjörður og Vestmannaeyjar) en missti þau árið 1816 til Grundarfjarðar (sem hafði verið sviptur þeim árið 1807). Bærinn endurheimti kaupstaðarréttindin árið 1866. Þá náði land kaupstaðarins yfir Eyrina og stóran hluta Eyrarhlíðar. Áður hafði það heyrt undir Eyrarhrepp. Kaupstaðurinn og hreppurinn sameinuðust aftur 3. október 1971, þá undir nafni Ísafjarðarkaupstaðar.

Árið 1994 bættist Snæfjallahreppur við sveitarfélagið og Sléttuhreppur árið eftir en hann hafði þá verið í eyði í meira en fjóra áratugi.

Hinn 1. júní 1996 sameinaðist Ísafjarðarkaupstaður 5 öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum: Flateyrarhreppi, Mosvallahreppi, Mýrahreppi, Suðureyrarhreppi og Þingeyrarhreppi, undir nafninu Ísafjarðarbær.

fjarlægð frá nirðri pól: 2 671 km fjarlægð frá miðbaug: 7 331 km


Tengt efni

Tenglar