Úsbekisdan

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Úsbekistan er tvílandlukt land í Mið-Asíu með landamæri að Kasakstan í vestri og norðri, Kirgistan og Tadsjikistan í austri og Afganistan og Túrkmenistan í suðri. Úsbekistan er lýðveldi að nafninu til en sumir hafa lýst landinu sem lögregluríki. Tjáningarfrelsi er verulega skert.

Úsbekistan var lengi hluti af stærri ríkjum eins og Tímúrveldinu. Borgirnar Búkara og Samarkand blómstruðu sem áfangastaðir á Silkiveginum frá Kína. Á 16. öld réðust úsbekar inn í landið frá heimaslóðum sínum norðan Aralvatns og stofnuðu Búkarakanatið. Á 19. öld hófu Rússar að leggja löndin í Mið-Asíu undir sig. Úsbekistan varð hluti af Sovétríkjunum sem Sovétlýðveldi úsbeka árið 1924. Landið lýsti yfir sjálfstæði við upplausn Sovétríkjanna 1. september 1991. Islam Karimov, forseti sovétlýðveldisins, var kjörinn fyrsti forseti landsins og hefur setið í embætti síðan.

Efnahagslíf Úsbekistan byggist aðallega á framleiðslu hrávöru eins og bómullar, gulls, úrans og jarðgass. Úsbekistan býr yfir fjórðu stærstu gullnámum heims. Vöxtur hefur verið hraður en þróun frá áætlunarbúskap í markaðsbúskap hefur verið mjög hæg. Spilling í stjórnkerfinu er landlæg og stjórnarandstaða er vanmáttug. Af öllum fyrrum sovétlýðveldum eru flestir pólitískir fangar í Úsbekistan. Um 85% íbúa tala úsbeksku sem er opinbert tungumál landsins og 90% íbúa eru múslimar.

Snið:Stubbur Snið:SSR Snið:Samvinnustofnun Sjanghæ Snið:Asía