Þjóðfundurinn 1851

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Þjóðfundurinn 1851 var einn afdrifaríkasti atburður í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.

Kallað hafði verið til fundarins í stað reglulegs Alþingis, sem hafði verið endurreist sex árum áður. Fundurinn var haldinn á sal Lærða skólans í Reykjavík. Á þessum fundi skyldi taka fyrir mál er vörðuðu stjórnskipun Íslands. Þar lagði Trampe greifi fram frumvarp sem fól í sér að Ísland yrði algerlega innlimað í Danmörku, Ísland myndi hafa sömu lög og reglur og Danmörk og Alþingi yrði amtráð en Íslendingar fengju að hafa sex fulltrúa á danska þinginu. Þjóðkjörnu fulltrúarnir voru andvígir frumvarpinu en þeir konungskjörnu mótmæltu því ekki. Trampe sá fram á að þjóðkjörnu fulltrúarnir myndu fella frumvarpið og sleit þá fundinum. Mótmælti Jón Sigurðsson þá í nafni konungs og þjóðarinnar því ranglæti sem haft væri í frammi. Flestir íslensku fulltrúarnir risu þá úr sætum og sögðu hin fleygu orð, sem síðan eru oft kennd við Jón Sigurðsson: „Vér mótmælum allir.“