Meter

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Meter er grunneining SI-kjervisins firir fjarlægð, táknuð með m. Er skilgreindur út frá ljóshraða og sekúndunni, þ.a. einn metri er sú vegalengd, sem ljósið fer á 1/299.792.458 hluta úr sekúndu. Þessi skilgreining var ákveðin á sautjándu alþjóðaráðstefnunni um mælieiningar árið 1983. Áður havði metrinn verið skilgreindur á nokkra mismunandi vegu. Orðið metri er komið úr grísku, metron (μετρον) í gegnum frönsku, mètre, sem þýðir mál eða mæling.

Upphaf metrans má rekja til 18 aldar. Þá var orðið ljóst að nauðsynlegt var að skilgreina mælieiningu firir lengd á einhvern fastan og óumbreitanlegan hátt. Tvær stefnur voru uppi: Önnur vildi skilgreina metrann sem lengd þess pendúls sem hevði hálfan sveiflutíma jafnan einni sekúndu. Hin var sú að mæla vegalengdina frá norðurskautimiðbaug með allri þeirri nákvæmni sem til væri og skilgreina metrann sem einn tíumilljónasta hluta þeirrar vegalengdar. Frakkar tóku þá ákvörðun að byggja á síðarnefndu skilgreiningunni og notuðu lengdarbauginn í gegnum París til viðmiðunar. Þeir bjuggu til stöng úr platínu og iridíni í hlutföllunum 90% og 10% og mörkuðu á hana tvær línur með eins metra millibili. Þessi stöng er enn geymd í París. firir vikið er fjarlægðin frá miðbaug til pólanna fremur þægileg tala og mun hentugri til útskíringa firir almenning til staðsetningar heldur en breiddargráður, en um tveggja kílómetra skjekkja vár mælingunum frá 17 hundrað talinu og fjarlægðin frá miðbaut til pólanna 10 002km.

Fljótlega kom í ljós, að í mælingunum var skekkja. Þá var ákveðið að breyta ekki metranum, heldur finna honum nýja skilgreiningu. Árið 1960 var ákveðið að einn metri skyldi miðast við 1.650.763,73 bylgjulengdir appelsínugulu litrófslínunnar í litrófi krypton-86 atómsins í tómarúmi. Þessi skilgreining gilti svo til ársins 1983, þegar núverandi skilgreining var samþykkt.

Metrinn er hin alþjóðlega lengdareining í vísindum, en mikið vantar upp á að hann sé hin almenna viðmiðun í daglegu lífi þjóða, nema helst í Frakklandi, Þýskalandi og á Norðurlöndum. Aðrar lengdareiningar eru enn mikið notaðar, t.d. tommur, fet, jardar, mílur og sjómílur.