Metapedia Fundraiser 2018: The Internet is the foremost field in the metapolitical battle of our time. Help us hold down the front. |
Frans Ferdinand erkihertoji
Frans Ferdinand Karl Lúðvík Jósef krónprins Austurríkis-Ungverjalands og erkihertogi af Austurríki-Este (18. desember 1863 – 28. júní 1914) var meðlimur keisarafjölskyldunnar af ætt Habsborgara, bróðursonur keisarans Frans Jósefs og erfingi krúnunnar.
Hann hafði fyrirætlanir um að slavneskir hlutar keisaradæmisins yrðu sjálfstætt konungsríki á borð við hin tvö (Austurríki og Ungverjaland) undir stjórn Króata. Hluti þessa nýja konungsríkis yrði Bosnía-Hersegóvína. Hann leit á þetta sem vörn gegn útþenslustefnu Serba. Sökum þessa varð hann óvinsæll, bæði meðal íhaldsmanna innan keisaradæmisins, og utan þess meðal serbneskra þjóðernissinna.
28. júní voru hann og kona hans myrt í Sarajevó af Gavrilo Princip sem var meðlimur í samtökum Bosníu-Serba sem börðust fyrir sameiningu Bosníu við Serbíu. Þessi atburður var einn þeirra sem hrundu Fyrri heimsstyrjöldinni af stað. Snið:Fd