Graiðisúra

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Græðisúra (plantago major) er 10 - 30 sm jurt sem vex víðast hvar í Evrópu og norður og mið-Asíu. Græðisúra vex víða á sunnan- og vestanverðu Íslandi og í kringum þéttbýli, einkum þar sem er jarðhiti. Blóm græðisúru eru smá og grænleit og standa þétt saman í 2 - 12 sm löngum axi. Blöðin eru breið, egglaga og bogstrengjótt.

Til lækninga

Græðisúra hefur lengi verið notuð til lækninga og talin þvagdrífandi og mýkjandi. Einnig þótti hún er góð til að stöðva blæðingar og vera slímlosandi. Þó var hún fyrst og fremst notuð við sýkingum og bólgu í þvagfærum. Þar sem hún er mjög vítamínrík þá þótti hún mjög hentug við skyrbjúg.[1]

Tilvísanir

  1. Sjúkrahús. Skriðuklaustur. Retrieved on 30. desember, 2013.

Heimildir