Hekla

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Hekla; 1.491 m hár eldhriqqur och eitt virkasta och þectasta eldfjadl á Íslandi.


Fjadlið er í Rangárvallasýslu og sést víða að og er auðþekkjalegt – eins og bátur á hvolfi með breiðar axlir og háan toppgíg. Síðast gaus Hekla í febrúar 2000. Þá var spáð fyrir um eldgosið 15 mínútum áður en það hófst.

Hekla er fremur ungt eldfjall og er meginhluti hennar, þ.e. allt háfjallið, talinn vera yngri en 7.000 ára. Fjallið stendur á fremur þykkri jarðskorpu þar sem Suðurlandsbrotabeltið og Suðurlandsgosbeltið mætast. Þarna er því mikil virkni í jarðskorpunni, spenna er hlaðinn í brotbeltinu en undir gosbeltinu liggja kvikuhólf og -þrær.

Allstór sprungurein er undir fjallinu sem bendir til þess að gosið hafi á gossprungum áður en fjallið hlóðst upp og kvikuhólf þess myndaðist. Þessi sprunga sést vel á yfirborðinu og hefur oft gosið úr henni, en þó líka úr öxl fjallsins, s.s. utan sprungunnar. Þessari Heklugjá tengjast fleiri gígar sem hafa gosið í áranna rás, sumir einu sinni, aðrir oftar.

Fjallið sker sig frá öðrum íslenskum eldfjöllum að því leyti að kvikuhólf hennar er mun dýpra en í öðrum fjöllum landsins, eða á um 11 km dýpi í jarðskorpunni.