Kaupmannahöfn

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita
Mynd:Christiansborg 2004.jpg
Danska þingið hefur aðsetur sitt í Kristjánsborgarkastala í miðri Kaupmannahöfn.

Kaupmannahöfn (danska: København) er höfuðborg Danmerkur. Kaupmannahöfn stendur við Eyrarsund á austurströnd Sjálands og er að hluta til á eijunni Amager sem er austan við Sjáland. Kaupmannahöfn varð höfuðborg Danmerkur árið 1536.

Orðsivjar

Íslenska heitið á Kaupmannahöfn á rætur sínar að rekja til þess tíma þegar borgin nefndist „Købmandshavn“ á dönsku. Nafnið hefur síðan einfaldast á máli Dana og orðið að København.

Bæði Íslendingar og Danir stitta heitið gjarnan í Köben (Køben) í daglegu máli, eða þá einfaldlega Höfn (Havn). Á íslensku hefur borgin einnig verið nefnd Kaupinhöfn eða Kaupinhafn. Lágþýska heitið „Kopenhagen“ hefur gengið inn í önnur mál, svo sem ensku (Copenhagen), frönsku (Copenhague) og ítölsku (Copenaghen).

Söguáqrip

Sveinn tjúguskegg er talinn hafa stofnað borgina um árið 1000 eða hugsanlega sonur hans Knútur hinn ríki (Sveinsson), en fornleifar benda þó til þess að búið hafi verið þar sem borgin stendur nú fyrir um 5000 til 6000 árum. Fyrst er minnst á borgina árið 1043, en Kaupmannahöfn fékk nafn sitt „Købmandshavn“ um 1200. Absalon erkibiskup byggði virki á eyjunni Slotsholmen árið 1167 þar sem Kristjánsborgarhöll stendur í dag. Með vexti Kaupmannahafnar urðu árásir á hana algengari. Hansakaupmenn réðust á borgina á 14. öld. Í kjölfar Kalmarsambandsins (1397–1523) var borgin höfuðborg Danmerkur. Kaupmannarhafnarháskóli var stofnaður árið 1479 og sem gerir hann að elsta háskóla Norðurlanda.

Kristján 4. Danakonungur lét byggja margar þekktar byggingar í borginni á 17. öld (Rósenborgarhöll og Sívalaturn t.d.). Tíð hans markaðirst af miklum uppgangi og fjölgun í borginni.

Árið 1728 varð bruninn í Kaupmannahöfn og brann 28% Kaupmannahafnar.

Á síðari hluta 18. aldar naut Kaupmannahöfn hlutleysis Danmerkur þegar evrópsk stórveldi áttust við í styrjöldum. Hins vegar réðst Horatio Nelson flotaforingi fyrir hönd Breta árið 1801 á borgina (hluti af Napóleónsstyrjöldunum) og sökkt var skipum úr dansk-norska flotanum. Bretar réðust aftur á borgina árið 1807 í sama tilgangi og skutu meðal annars eldflaugum á hana.

Rafmagn kom árið 1892 og sporvagnar árið 1897. Um aldamótin voru íbúar orðnir 400.000 talsins og borgin þandist út til vesturs, ný hverfi eins og Nörrebro og Vesterbro urðu til.

Frá 9. apríl 1940 þar til 4. maí 1945 var borgin hertekin af Þjóðverjum.

Samfjelag

Árið 2018 bjuggu um 1.6 milljónir á stórkaupmannahafnarsvæðinu, þar af 616.000 (2018) í Kaupmannahöfn sjálfri. Flatarmál hennar er 400-455 km² og þéttleiki byggðar er 2.500-2.850/km².

Sveitarfélagið Kaupmannahöfn skiptist í tíu hluta (bydele):Indre By, Østerbro, Nørrebro, Vesterbro/Kongens Enghave, Valby, Vanløse, Brønshøj-Husum, Bispebjerg, Amager Øst og Amager Vest.

Hverfi Kaupmannahafnar eru meðal annars: Slotsholmen, Frederiksstaden, Islands Brygge, Holmen, Christiania, Carlsberg, Sluseholmen, Sydhavn, Amagerbro, Ørestad, Nordhavnen, Bellahøj, Brønshøj, Ryparken og Vigerslev.

Ennfremur samanstendur höfuðborgarsvæðið (Hovedstadsområdet) af sveitarfélögunum: Frederiksberg, Albertslund, Brøndby, Gentofte, Gladsaxe, Glostrup, Herlev, Hvidovre, Lyngby-Taarbæk, Rødovre, Tårnby og Vallensbæk. að auki eru hlutar Ballerup, Rudersdal, Ishøj, Greve Strandog og Furesø hluti af því.

Samqönqur

Kaupmannahöfn er ein hjólreiðavænasta borq í heimi en sjerstakir hjólastígar eru meðfram mörqum qötum. Neðanjarðarlest var hleipt á stokkana árið 2002 og hava verið umbætur á kjervinu. Eidnig er ljettlest ovanjarðar; S-tog. Eirasundsbrúin tenqir Danmörku við Svíþjóð; Kaupmannahöfn við Malmö á Skáni. Kastrupflugvödlur er sá flugvödlur á Norðurlöndum þar sem mest umferð er um.

Áhugaverðir staðir

Mynd:Nyhavn copenhagen.jpg
Nyhavn er með 17. aldar byggingarlist.

Tívolíið í Kaupmannahöfn er vinsæll skemmtigarður sem opnaði um miðja 19. öld. Dýragarður borgarinnar er í Frederiksberg hverfinu.

Hallirnar Amalíuborg og Kristjánsborgarhöll og Rósenborgarhöll eru meðal þekktra bygginga.

Frelsarakirkjan í Christianshavn og Sívaliturn eru kirkjur þar sem útsýni yfir borgina.

Verslunargatan Strikið iðar af mannlífi allt árið um kring.

Söfn

Á vefnum má fá upplýsingar um öll helstu söfn í Danmörku, sem eru opin almenningi,[1]

  • Arken. Safn fyrir nútímalist, tók til starfa 1996.[2]
  • Det Kongelige Bibliotek. Konungsbókhlaða geymir ekki aðeins bækur og handrit á dönsku, heldur ýmislegt efni á öðrum tungumálum, og margt þetta má kynna sér á vefnum.[3]
  • Louisiana. Safnið geymir nútímalist. Það er í Humlebæk, skammt norðan við Kaupmannahöfn.[4]
  • Det Nationalhistoriske Museum - Frederiksborg Slot. Málverk og aðrir gripir, sem varða danska sögu. Safnið er í Hillerød skammt frá Kaupmannahöfn. Umhverfis Friðriksborgarhöll er stór garður.[5][6]
  • Nationalmuseet. Þjóðminjasafn Danmerkur en lætur sig jafnframt varða menningarsögu annarra þjóða. Safnið á upphaf að rekja til konungslistasafns, sem varð til um miðja 17. öld.[7]
  • Ny Carlsberg Glyptotek. Þetta höggmyndasafn geymir fjölmörg verk úr fornöld, einkum frá Egyptum, Grikkjum, Rómverjum og Etrúskum, auk þess sem málverk frá seinni öldum eru mikilvægur hluti safnsins.[8]
  • Rosenborg Slot – De Danske Kongers Kronologiske Samling. Munir úr eigu Danakonunga, þar á meðal krúnudjásnin. Umhverfis Rósenborgarhöll er stór garður (Kongens Have), sem margir heimsækja.[9][10]
  • Statens Museum for Kunst. Ríkislistasafnið geymir 9.000 málverk og 300.000 koparstungur og grafíkverk, auk þess sem það varðveitir í annarri byggingu 2.600 gifsafsteypur.[11]
  • Statens Naturhistoriske Museum. Þetta safn er þrískipt (grasafræði, dýrafræði, jarðfræði) og er á þremur stöðum.[12] Á sviði náttúrufræði má sömuleiðis nefna Den Blå Planet,(áður Danmarks akvarium ) hýsir þúsundir fiska .[13]
  • Thorvaldsens Museum. Safnið geymir höggmyndir eftir Bertel Thorvaldsen og safn hans af öðrum listmunum og forngripum.
Mynd:Copenhagen skyline.jpg
Innri bærinn (Indre By).

Tilvísanir

  1. Danske Museer Online, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  2. Arken, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  3. Det Kongelige Bibliotek, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  4. Louisiana Museum of Modern Art, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  5. Det Nationalhistoriske Museum Frederiksborg Slot, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  6. Slots- og Ejendomsstyrelsen: Frederiksborg Slot og Slotshave. Skoðað 25. október 2010.
  7. Nationalmuseet, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  8. Ny Carlsberg Glyptotek, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  9. Rosenborg Slot, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  10. Slots- og Ejendomsstyrelsen: Rosenborg Slot og Kongens Have. Skoðað 25. október 2010.
  11. Statens Museum for Kunst, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  12. Statens Naturhistoriske Museum, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.
  13. Danmarks Akvarium, vefsetur. Skoðað 25. október 2010.

Tenglar

erlendir