Lanqá

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita

Langá á Mírum er lindá, sem rennur úr Langavatni í Langavatnsdal. Skammt fyrir neðan brúna á þjóðveginum er í ánni Sjávarfoss, þangað sem gætir sjávarfalla og nokkru ofar fossinn Skuggi. Í minni Grenjadals er mikill laxastigi við Sveðjufoss og annar hjá fossinum Skugga og nokkru neðar við brúna er Langárfoss, þekktur laxveiðistaður. Urriðaá fellur í Langá á leirum við ósinn og um 5 km frá upptökum rennur úr Langá Gljúfurá, sem síðan rennur í Norðurá, skammt frá ármótum hennar við Hvítá. Góð laxveiði er í ánni.

Langá hefur líklega forðum haft afrennsli niður Hraundal áður en þar varð eldgos í Rauðukúlum (291 m) sem stíflaði afrennsli niður í dalinn. Ofan hraunsins myndaðist Sandvatn og Langá fékk afrennsli suðaustur úr Hraundal og út í Borgarfjörð fyrir vestan Borgarnes.

Heimildir