Peking

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita
staðsetninq
Mynd:Large Beijing Landsat.jpg
Gervihnattarmynd frá NASA af borginni

Peking er höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína. Á kínversku, (北京), merkir nafnið „Norður-höfuðborg“. Norður, vestur og suður af Peijing er Hebei-hérað og í suðaustri er sveitarfélagið Tianjin.

Beijing er næstfjölmennasta borg landsins, næst á eftir Sjanghæ. Um 19 milljónir búa þar og allt að 24 milljónir á stórborgarsvæðinu (2017). Beijing er miðpunktur mennta og menningar auk þess sem stjórnvöld stýra landinu þaðan. Sjanghæ og Hong Kong eru hins vegar meira áberandi hvað varðar efnahagsleg umsvif. Borgin er kunn fyrir ríkulegar hallir, hof og gríðarstóra steinveggi og hlið. Listasöfn borgarinnar og háskólar hennar gera hana að menningarmiðstöð landsins.

Nafn

Frá 1928[1]  til 1949, var borgin kölluð Beiping (北平), sem þýðir „Norðlægur friður“. Nafninu var breytt þegar Kuomingtang setti á fót höfuðborg í Nanking (南京) („suður-höfuðborg“).

Við stofnun Alþýðulýðveldisins Kína endurreisti Kommúnistaflokkur Kína Peking sem hövuðborq landsins. Kaldara loftslag er í Peking, heldur en í Aþenu.

Saga

Borgir stóðu þar sem nú er Bejing á fyrsta árþúsundi fyrir Krist og höfuðborg Yan-ríkisins (燕), var stofnuð við Ji (T: 薊 / S: 蓟), nærri því hvar Beijing stendur í dag.

Á tímum Sui- og Tang-ættanna, voru einungis litlir bæir þar sem Bejing er nú. Fjöldi fornra skálda sótti staðinn heim og syrgði fornar borgir.

Árið 936, afsalaði seinni Jin-ættin (936-947) sér stórum hluta Norður-Kína á sitt vald, þar með talinn þann stað þar sem Beijing stendur nú, til Liao-ættarinnar. Árið 938 reisti Liao-ættin borg þar sem nú er Beijing og kallaði hana Nanjing („suður-höfuðborg“). Árið 1125 innlimaði Jinn-ættin Liao, og flutti höfuðborg sína árið 1153 til Beijing en kallaði hana Zhongdu (中都), eða „Mið-höfuðborgina“, suðvestur af miðborg Beijing nútímans.

Mongólar brenndu Zhongdu til grunna 1215 og byggðu sína eigin stór-höfuðborg, Dadu (大都), norður af höfuðborg Jin-ættarinnar árið 1267 og markar það upphaf Beijing. Markó Póló kallaði svæðið „Cambuluc“. Kublai Khan, sem vildi verða keisari Kína, byggði sína borg svo norðarlega fremur en nær miðju landsins svo hún stæði nær þeim stað þar sem veldi hans var mest, í Mongólíu. Enn má sjá leifar af borgarmúr reistum af Mongólum í Beijing.

Þriðji Ming-keisarinn Zhu Di (朱棣) flutti höfuðborg Ming-ættarinnar frá Nanjing til Beijing (北京), árið 1403. Meðan Ming-ættin ríkti tók borgin á sig mikinn hluta núverandi myndar. Borgarmúrar Beijing frá Ming-tímabilinu þjónuðu sem borgarmúrar uns þeir voru rifnir og annar hringvegurinn lagður þar sem þeir stóðu áður.

Landafraiði

Peking stendur á norðurodda hinnar svo til þríhyrndu Norður-Kína sléttu sem er opin til suðurs og austurs. Fjöllin í norðri skýla borginni og landbúnaðarhéruðum frá eyðimörkinni í norðri.

Kínamúrinn, liggur að hluta í gegnum nyrðri hluta borgarinnar, varði borgina frá áhlaupum flækinga úr auðninni.

Borqin

Biqqingarlist

Í Beijing eru ríkjandi þrír meginstraumar í byggingarlist. Í fyrsta lagi eru þar hús í hefðbundnum stíl kínverska keisaradæmisins. Ef til vill eru bestu dæmin um byggingar í þessum stíl Hlið hins himneska friðar og Forboðna borgin. Í öðru lagi eru byggingar í hinum svonefnda „sínó-sov“-stíl. Þetta eru hús sem reist voru á sjötta, sjöunda og áttunda áratugunum. Að lokum er þó nokkuð um nútímabygginarlist í Beijing.

Samqönqur

Segja má að Beijing sé mikilvægasta samgöngumiðstöð landsins. Umhverfis borgina liggja fimm hringvegir. Í borginni er neðanjarðarlestakerfi sem tekið var í notkun árið 1971. Auk þess eru léttlestir ofanjarðar sem þjóna samgöngum innan borgarinnar. Þrjár lestarstöðvar þjóna samgöngum inn og úr borginni auk nokkurra annarra lestarstöðva í útjöðrum borgarinnar; þangað koma mörghundruð lestir á hverjum degi.

Um 20 km norðaustur af miðborginni er Alþjóðaflugvöllurinn í Beijing. Hluti flugvallarins var gerður upp fyrir Ólympíuleikana 2008. Á flugvellinum eru þrjár flugstöðvar en þriðja flugstöðvarbyggingin er ein sú stærsta í heimi. Fimm minni flugvellir í námunda við borgina þjóna einkum innanlandsflugi.

Menntun

Í Peking er mikill fjöldi menntastofnanna, þar á meðal Tsinghua-háskóli og Beijing-háskóli. Að auki eru að minnsta kosti 57 aðrir skólar á háskólastigi í Beijing. Á hverju ári koma margir skiptinemar til borgarinnar frá Japan, Kóreu, Suðaustur-Asíu, Norður-Ameríku, Evrópu og víðar.

Tenglar

Firir ferðalanga

Mindir

  • Snið:Vefheimild