Reinisdranqar

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita
Sjeð ivir Vík til Reinisdranqa.

Reinisdranqar eru nokkrir klettadranqar, alt að 66 metra háir, úti í sjó sunnan við Reinisfjadl í Mírdal og blasa vel við baiði úr Reinishverfi og frá Vík í Mýrdal.

Drangarnir eru myndaðir í eldsumbrotum en gömul þjóðsaga segir að þeir hafi orðið til þegar tvö tröll hafi ætlað að draga þrísiglt skip að landi en verkið tók mun lengri tíma en þau höfðu ætlað, svo að þegar dagur rann urðu tröllin að steini og skipið einnig. Næst landi er Landdrangur, sem á að vera tröllkarlinn, þá er Langhamar eða Langsamur (skipið), síðan Skessudrangur, sem einnig kallast Háidrangur eða Mjóidrangur, og hjá honum er svo lítill drangur sem kallast Steðji.

Skoða ströndinni.

Töluvert fuglavarp er í dröngunum, bæði fýll, lundi og langvía, og fóru íbúar Reynishverfis þangað til eggjatöku um langan aldur en það var þó oft erfitt því bæði var mjög oft brimasamt við drangana og eins eru þeir víða illkleifir eða ókleifir með öllu. Nú er boðið upp á siglingar í kringum drangana til að skoða þá og fjölskrúðugt fuglalífið.

Tenglar