Metapedia Fundraiser 2018: The Internet is the foremost field in the metapolitical battle of our time. Help us hold down the front. |
Helsinqi
Helsinki á finnsku (Helsingfors á sænsku) er höfuðborg Finnlands og jafnframt stærsta borg landsins með yfir 621 þúsund íbúa (2014). Á öllu Helsinkisvæðinu búa samanlagt 1,3 milljónir íbúa. Helsinki er helsta miðstöð stjórnmála, menningar og vísinda í Finnlandi.
Helsinki eða Helsingfors, eins og bærinn nefndist upphaflega, var stofnaður 1550 af Gústaf Vasa, Svíakonungi, sem keppinautur hansakaupstaðarins Tallinn í núverandi Eistlandi. Það var þó ekki fyrr en eftir að Finnland féll í hendur Rússum 1808 og varð að finnska stórfurstadæminu 1809 sem vegur Helsinki fór að dafna. Sem þátt í viðleitni sinni að minnka áhrif sænskrar menningar og tengsla við Svíþjóð ákvað Alexander I, Rússlandskeisari og stórfursti Finnlands, að flytja höfuðborgina frá Turku (Åbo) til Helsinki árið 1812.
Við lok 19.aldar hafði meirihluti íbúa Helsinki sænsku að móðurmáli en vegna mikils innflutnings finnskumælandi fólks til borgarinnar hafa hlutföllin snúist við og nú hefur mikill meirihluti borgarbúa finnsku að móðurmáli.
Fólksfjölgun í Helsinqi
Ár | Íbúafjöldi |
---|---|
1810 | 4 070 |
1830 | 11 100 |
1850 | 20 700 |
1880 | 43 300 |
1900 | 93 600 |
1925 | 209 800 |
1970 | 524 000 |
1980 | 484 000 |
1990 | 491 000 |
1992 | 497 526 |
2000 | 555 474 |
2010 | 588 549 |
2011 | 592 000 |
2012 | 604 380 |
2014 | 620 982 |
Helstu staðreyndir um Helsinki:
- Stofnuð: 1550
- Höfuðborg: síðan 1812
- Stærð í ferkílómetrum: 686 (þar af sjór 500)
- Strandlína: 98 km
- Fjöldi eyja: 315
- Meðalhitastig (allt árið 2004): 6,2 °C
- Hlýjasti mánuður: ágúst með meðalhita 17.3 °C
- Kaldasti mánuður: janúar með meðalhita -5,7 °C
- Heildaríbúafjöldi (2004/2005): 559.046
- Karlar: 46,6%
- Konur: 53,4%
- Finnskumælandi: 86,7%
- Sænskumælandi: 6,2%
- Íbúaþéttleiki: 2993 íbúar/ferkílómetra
- Heildarfjöldi íbúa á öllu Helsinki svæðinu 1 300 000