Portó Ríkó

Úr Metapedia
Stökkva á: flakk, leita
Estado Libre Asociado de Puerto Rico
Commonwealth of Puerto Rico
Fáni Púertó Ríkó Skjaldarmerki Púertó Ríkó
(Fáni Púertó Ríkó) (Skjaldarmerki Púertó Ríkó)
Kjörorð: Joannes Est Nomen Eius
(latína: Jóhannes er nafn hans)
Þjóðsöngur: La Borinqueña
Kort sem sýnir staðsetningu Púertó Ríkó
Höfuðborg San Juan
Opinbert tungumál spænska, enska
Stjórnarfar Samveldisland
Alejandro Garcia Padilla
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
169. sæti
9.104 km²
1,6
Mannfjöldi
 • Samtals (2012)
 • Þéttleiki byggðar
130. sæti
3.667.084
418/km²
VLF (KMJ)
 • Samtals
 • á mann
áætl. 2010
68,84 millj. dala (87. sæti)
16.300 dalir (82. sæti)
Gjaldmiðill Bandaríkjadalur (USD)
Tímabelti UTC-4
Þjóðarlén .pr
Landsnúmer 1-787 og 1-939

Portó Ríkó er sjerstakt sambandssvæði innan Bandaríkjanna, austan við Dóminíska líðveldið og vestan við Jómfrúaeyjar í norðausturhluta Karíbahafs. Aðaleyjan er minnst Stóru-Antillaeyja en svæðið nær einnig yfir minni eyjar og rif, þar á meðal Mona, Vieques og Culebra. Þar er hitabeltisloftslag og því tiltölulega jafn hiti árið um kring.

Taínóindíánar voru upprunalegir íbúar eyjarinnar. Kristófer Kólumbus gerði tilkall til eyjarinnar fyrir hönd Spánar í annarri ferð sinni til Ameríku 19. nóvember 1493. Spánverjar stofnuðu nýlendu á eyjunni og hnepptu frumbyggja hennar í þrældóm. Spánn hélt eyjunni næstu fjórar aldirnar þrátt fyrir tilraunir Hollendinga, Breta og Frakka til að leggja hana undir sig. Eftir ósigur Spánar í stríði Spánar og Bandaríkjanna létu þeir eyjarnar af hendi við Bandaríkjamenn með Parísarsáttmálanum 1898. Árið 1917 fengu íbúar Púertó Ríkó bandarískan ríkisborgararétt og 1948 fengu þeir rétt til að kjósa eigin landstjóra. Árið 1952 fékk Púertó Ríkó eigin stjórnarskrá sem sjálfstætt ríki í frjálsu sambandi við Bandaríkin en ríkið er samt sem áður innan lögsögu Bandaríkjaþings þar sem Púertó Ríkó hefur áheyrnarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkur Púertó Ríkó hefur barist fyrir sjálfstæðu ríki.

Efnahagur Púertó Ríkó byggist fyrst og fremst á iðnaðarframleiðslu. Landið er fátækara en fátækasta fylki Bandaríkjanna, Mississippi, en samanborið við Rómönsku Ameríku er það með mestu landsframleiðsluna. 41% íbúa eru undir alþjóðlegum fátæktarmörkum.